..Svaðalegasta síðan í bænum..
¨°..Orð ársins..°¨
09.06.2006 14:13:39 / thordis_

Lífið er einsog sleikur.. bara endalaus leikur...?

jæja.. þessi síða er svona hér um bil látin.. en þar sem að skólinn er liðinn undir lok ætti jeg að hafa e-h meiri tíma í að skrifa inn svona einsog eina og eina færslu/blogg.. því ekki vill heimurinn að þessi síða hverfi.........

En þá eru tímarnir í gaggó mos liðnir.. dísess.. jeg trúi þessu varla.. mér líður bara einsog hægri hönd mín sé farin... gaggó mos var lífið... hvað á maður að gera núna.. engin siggeir... halldór.. gulla..?? fookkk...8|

 PICT0060

Mikill grátur átti sér stað þarna.. þar sem við sátum í síðasta sinn í stiganum... úfff...

En þá var útskriftin í gær.. og var hún alger gleði stund.. þetta byrjaði allt með því að gleðisveit varmárskóla/ skólakórinn söng nokkur glæsileg lög.. svosem.. sórsmellinn Sumarfrí.. afrískan keðjusöng.. og fleirri slagara.. síðan fengu við einkunnirnar..rósabúnt óg vænan sleik frá keidí kennara.. það var svo skrifað í nokkrar árbækur og að lokum knúsað birnu og gróu gangaverði.. eftir það fór maður heim og grét í 4 tíma yfir því að gaggó mos er búinn....!

jæja.. þá er að segja frá útskriftaferðinni.. en hún var mjög fín.. og er jeg hér með mynd sem lýsir ferðinni best...

haaa...?

en gleðin var við völd alveg frá upphafi til enda ferðarinnar... reyndar byrjaði ferðin með svona 2 tíma seinkunn því að rútan var biluð.. og til að laga hana þurftu þeir sem sátu aftast að fara út.. jess.. svo að jeg ásamt fríðu föruneyti stóðum úti í rigningunni í 2 tíma.. meðan rútan var gerð aksturshæf..

?

Síðan var haldið beint á svefnstaðin (reyndar var lítiðum svefn þar) þar sem við gerðum okkur heimakær með meiru.. og komum okkur vel fyrir.. svo var bara farið beint í riverrafting.. sem var mikil gleði.. bara að fara í blautbúningana var gleði...

Heitar...??

eftir það var farið í heita potta og sturtur.. svo var bara vakið fram á nótt.. mikið var um nudd.. og skemmtilega orðaleiki..?? ásamt skemtilegum umræðum hjá okkur stelpunum fyrir svefnin... ( mega trúnó)..

það var svo farið á dalvík... og stúderað tombólu sem var þar.. ásamt því að kíkja á safn um jóa risa... 

Tomb-ólu gleði.... með meiru....

svo fórum við á höfuðstað norðursins.. þetta er sikk pleis.. fólk talar öðruvísi.. lítur allt öðruvísi út..(semí skrítinn) og jeg er ekki frá því að vatnið þarna sé allt öðruvísi... En á akureyri fórum við á bautann og bíó sem var alveg taumlaus gleði..

 ehhh...  svona er fólkið á akureyri...?

svo var haldið aftur "heim".. og önnur svefnlaus nótt átti sér stað ásamt fleirri skemmtilegum orðaleikjum og meiri gleði.. en eflaust gerðum við e-ð meiri gleði sem jeg bara man ekki.. en það verður að hafa það......

en þá verður þetta vart lengra í dag..... lifð heil... mega lööv 8)

p.s gleðilegt sumar.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 15:31:40 / thordis_

Sjaldan er flas til fagnaðar...?!

Jæja..jeg hef ákveðið að taka upp á því að blogga til þess að gleðja nokkur hjörtu..og ætla að segja frá óvissuferðinni sem við fórum með bólinu í nokkrum orðum..

 

en nú eru samrændu prófin einmitt búin og eru það mikil gleðitíðindi fyrir núverandi 10undu bekkinga..og til þess fagna því að þessi mikli áfangi í lífi okkar unga fólksins væri búinn... Bauð(gegn greiðslu) félagsmiðstöðin Bólið 10undu bekkingum í óvissuferð..( það var samt sem áður ekki mikil óvissa í þessari ferð því nánast allir vissu hvað var fyrir höndum)..

ari og sandra voru sjúklega hress í rútunni..

og ragnhildur líka...

 

 En þetta byrjaði allt saman á svaðalegri grillveislu við bólið þar sem boðið var uppá þjóðarétt íslendinga pylsu/pulsu og kók.. svo var haldið í rútur sem keyrðu með ungmenninn í keflavík þar sem farið var í gókart. Þar var greinilega hægt að sjá hverjir eiga eftir að verða fyrirmyndar ökumenn framtíðarinnar..

sjúklega heitar píur..

 

eftir gókartið lá leiðin í Blá lónið.. ljónið?? Þar sem allir fengu að þrífa af sér syndir dagsins.. og sumir fóru ofaní viljugir en aðrir ekki..hmm elsa..?

 

endaði ferðin svo á því að allir fengu indæla flatböku á mamma mía...

 

 

 

 

 Ã³vissa.. 043

 Topp pleis..

En jæja.. svo er skólinn bara að fara að líða undir lok og hvað tekur við þá..?? haa.. lífið er nánast dottið í sundur og lítur út einsog risastórt púsluspil..

 

 

 

 

 og þarf maður því að taka stórt skref í lífinu.. og byrja að púsla öllu saman.. það kemur ekkert annað til greina.. hvaða skóla maður ætlar í.. hvar maður ætlar að vinna.. annars deyr maður bara..!

En úr alvörunni yfir í gleðina.. hvernig væri að fara í smárann.. í "the claw" og vinna bara eitt beibí..

barn í kló

það væri nú ekki amalegt.. að koma heim úr verslunaferð.. kannski búin að gera góð kaup í söru og topshop og með eitt beibí..?séns..?

en lengra verður þetta nú ekki í dag.. og vegna þess hversu slök jeg hef verið að blogga.. þá lofa jeg að jeg mun blogga aftur innan viku.. annars labba jeg í þessu átfitti niður laugarveginn..?

WonderWomansikk...

p.s .. jeg vil enda þetta blogg á að þakka eygló sif fyrir tilvist sína í heiminum.. eygló þú ert voðalega indæl pía.. jeg elska þig af öllu hjarta..(samt ekkert kynferðislegt............?)

eygló og dísa.. 025

Lööööööööv


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 00:12:01 / thordis_

Ef eitt leiðir að öðru.. að hverju leiðir öðru þá..???

Jæja.. jeg hef ákveðið að skella inn einsog einu bloggi eða svo.. svo að áðdáendur mínir verði ekki fyrir vonbrigðum.. svo virðist einmitt líka vera að sjálfsmorðstíðnin í heiminum fellur alveg hrikalega og er nánast engin rétt eftir að jeg er búin að blogga.. (jeg er ekki bara að blogga til að gleðja.. jeg er að bjarga mannslífum)

Jeah.. jeg hef ákveðið að fara yfir atburði nýliðinar tíðar á léttu nótunum.. og byrja í Eðlisfræðitíma á mánudagsmorgni..

eðslisfr..jeg og ragga að loftæma

jáá.. þetta er eitt af þessum kódak mómentum í lífinu.. en þarna erum við stúlkurnar einmitt að lofttæma krukku með kókosbollu.. sem við/égogelva fengum svo að borða eftir tilraununa..(það útskýrir kannski mest áhugan hjá mér og elvu að ljúka þessari tilraun sem fyrst..)

svo á þessum sama mánudagsmorgni átti jeg samtal við hana eygló sif.. en eftir rúma 14 svarta daga í lífi mínu var eygló loksins komin aftur heim frá spáni.. og lífið hefur  tekið nýja stefnu síðan þá og er loksins komið á réttan kjöl..

eþk

jeg elska eygló..(ekki bara útaf peningunum)

Síðan var vikan svona nett tekin í lærdóm.. því mér skilst að þessi samrændupróf séu að fara að byrja.. hvað.. ekki á morgun heldur hinn..?? og það þýðir nú ekkert annað en að bera sig eftir björginni og taka þau með stæl..

siiikkk...

Við Píurnar í 3.flokki.. erum svo búnar að tryggja okkur úrslit í faxaflóamótinu.. eða erum svona 87% komnar þangað.. en það gerðum við einmitt með því að sigra lið hauka á ásvöllum... en eftir þann áhugaverða og skemmtilega leik þá kom maður heim.. voða glaður og ætlaði í sturtu og verða voða hrein og fín pía.. en ekki vildi betur til en svo að hitalögninn sprakk bara í húsinu.. og jeg átti því engra kosta völ en að fara til/með eygló í sturtu..?

öööööö..?

svo lennti jeg í því skemmtilega atviki að lenda í heimkomusamkomu..? hjá manneskju sem jeg hafði aldrei hitt áður.. en hún reyndist nú bara vera hin indælasta manneskja og leysti mig út með gjöfum og óskum um gleðilegt líf..?

Á verkalýðsdeginum.. þessum indilsega 1.maí.. kom maður svo heim frá honum davíði og byrjaði að læra smá... en lennti í smá árás af litlum skæruliða.. en hann gengur undir nafninu Alexander.. hann var örlítil truflun.. en eftir að hafa sagt honum nokkrar sögur um frönsku byltinguna og samþykkt að verða prinsessan hans??? þá fékk jeg aftur frið..

jeah.. 007

jeah.. 009

 hann er samt alveg topp gæi..

eeeeen.. jeg er orðin semí þreytt og hef ákveðið að hætta blogg skriftum mínum þetta kveldið.. en vil enda þetta blogg á því að óska 10undu bekkingum nær og fjær góðs gengis í samrænuprófunum..

P.s fyrir ykkur sem fara í samfélagsfr samrændaprófið.. þá var þjóðfundurinn árið 1851...

P.s.s.. jeg kom heim um daginn og lennti í ávöxt sem var svartur.. og ef maður bankar í hann þá heyist einkennilegt hljóð.. og ef maður bragðar á honum.. þá lýkist hann semí frauðplasti á bragðið.........?

haaaaaaa..?

En jeg er haldin á fund svefnenglana... leiter......8)


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 19:47:59 / thordis_

Sjaldan kemur dúfa úr hrafnseggi...??

jæja.. krakkar mínir..

Jeg ætla að byrja þetta forláta blogg á því að óska landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegra páska...

jeg er búin að byrja öll mín síðustu blogg á að afsaka mig fyrir slaka framistöðu í blogginu.. en ætla ekki að gera það núna..? en jáá.. þetta páskafrí er bara ekki búið að vera neitt annað en mega sukk..

??????

Fermingin hans elvars litla var tekin með trompi.. váá.. hef ekki skemmt mer betur síðan í jólaboðunum sem haldin voru seint í desembermánuði síðasta árs..

Svo var farið í aðra fermingu í sandgerði á skírdag.. jeg og valdís komum aðeins á eftir.. og keyrðum svona 8 hringi í kringum þetta pleis í leit af samkomuhúsinu.. fundum það nú fyrir rest.. en stoppuðum í fermingunni í svona korter.. og brunuðum svo aftur heim og uppí laxnes.. það var hestaferð með vinnunni.. og við fórum í svona klukkutíma langan reiðtúr.. og dísess.. var að deyja í endann. það er horror að sitja á þessum kvikindum þegar þeir taka stokk/brokk/sukk eða hvað sem þetta rugl heitir.. 

svo eftir reiðtrúin var farið í hlöðunna og grillað pulsur/pylsur.. og glensað langt fram eftir nóttu..

Allir að dansa kúrekadans.. (bakaríið er í raunini leyikúrekafélag..)

Jee beibí.. eftir glensið var bara haldið beint til eiginmansins..

síðan vaknaði maður bara í dag.. og horfði á davíð leita af páskaegginnu sínu.. sem tók ekki nema rúman 1/4 úr klukkustund.. svo borðaði maður páskaeggið hans.. og svo varð maður ennþá feitari.. og borðaði dýrindis vöflur með jarðaberjum..rjóma.. súkkulaði.. og bara öllu sem maður fann..

í kvöld er svo bara planið að fara út að borða.. arnar grant ætlar að bjóða mér á argentínu steikhús.. jeg elska þennan mann.. hann er nýbúin að bjóða mér á ströndina  í sarajevó..

arnar og jeg á ströndinni

við tókum því bara rólega.. voða kósí. (sorrý keli.. ekki vera reið þótt ég fór ein með honum.. hann elskar mig bara greinilega meira)

Svo er maður svona næstum farin að gráta sig í svefn.. jeg er búin að vera eyglóar laus núna í u.þ.b. 144 klukkustundir.. dísess.. og það er nú einsgott að konan komi með e-ð fallegt handa mér frá spáni.. því annars slít ég fóstbræðrarlag okkar..

jess.. jeg hef svosem ekki mikið meira að segja.. nema djöfull væri fínt að kaupa sér eina svona..

hver er ekki til í vel fóðraða Mahóní kistu..?

bara til að leggja sig.. fá frið frá amstri dagsins.. væri það nokkuð of sikk..?

jæja.. þangað til næst.. verið góð við allt og allla því þá gengur allt svo miklu betur..

leiter....8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 19:15:34 / thordis_

Þegar margt smátt safnast saman.. þá verður alveg fullt af smáu?

jess.. þá er komið að því.. þetta er tíminn.. allir hafa beðið eftir þessu.. nei það er ekki að koma hitabylgja til íslands.. heldur hef jeg ákveðið að blasta inn einu bloggi eða svo..

Það hefur nú margt drifið á daga mína síðan jeg bloggaði seinast.. en það er einmitt að færast í aukana að jeg geri æ minna af því.. (að blogga þáá) öö árshátíðin var haldin með glæsibrag seinasta fimmtudag.. en fyrir hana fórum jeg keli og ragnhildur í bæinn.. og versluðum okkur nauðsynjar.. svosem kjóla.. skó og nefsprey..? eftir að hafa labbað fram og til baka á laugaveginum í -18° frosti.. þá fórum við á prikið og fengum okkur mat.. jeg fékk það sem ætti að vera þjóðarréttur íslensku þjóðarinnar.. "kjúklinga burrito" dísess.. hef ekki smakkað neitt betra...

Á sjálfan árshátíðardaginn var haldinn íþróttadagurinn.. þetta var með þeim betri íþróttadögum sem jeg hef verið á.. við stúlkurnar tókum leik á móti kennurunum því lágafellsfólkið beilaði og mætti ekki..

En allir þeir sem hafa e-h á milli eyranna sáu greinilega að kennararnir svindluðu.. og unnu alls ekki leikinn einsog sumir þeirra héldu framm...

enda gat engin sigrað þetta ótrúlega lið.. sem samanstóð af mér ólu aldísi hafdísi siggu og maríu..

Um kvöldið var svo gleðikvöld.. þetta byrjaði allt með indælum mati sem hann vignir lærimeistari jóa fel matreiddi..

matur af guðs náð..

jeg fékk mér svo nýtt date fyri matinn þar sem að hann davíð örn var ekki viðstaddur.. þá tók hann dabbi litli nafni hans við af honum og stóð sig með prýði.. (stærðin skiptir ekki máli) davíð Örn.. davíð antonss..? þetta er allt sama sukkið...

en svo hófst allt alvuru sukkið.. og þar dansaði maður einsog maður dansaði forðum í freestyle 1998.. ( úff gúd tæms beibí..)

hehe.. á ekki betri mynd.. en einsog sést greinilega .. þá er jeg lengst til vinstri..(ekki nema 187 kíló á þessu tímabili)

En jáá.. svo í hlénu.. þá var árshátíðar ræðan lesin..úrslit kosninganna tilkynnt.. og síðast en ekki síst.. myndbandið sem að jeg elva..keli og ragnhildur bjuggum til með semí hjálp hjálp frá tæknikónginum Steina eða steinda Jr einsog landinn kallar hann..(ef það er til e-h lýsing fyrir þetta myndband þá væri hún líklegast e-h vegin svona.. 1 stk hemmi gunn.. 500 gr súkkulaði og 1 kg af sól...= mega gleði) 

Hilmir ein bjartasta von íslendinga..disa.. og jeg.. ógó mega hress..

emm.. svo um helgina.. var unnið þjálfað og farið í aukatíma fyrir samrænduprófin.. en auk þess var farið til hennar eyglóar.. sem að var einmitt ein heima alla helgina.. við áttum góðar stundir saman..? en vil jeg samt þakka henni mest fyrir ökuferðina á laugardagskveldinu.. þú lagðir þarna líf margra í hættu úff...

jeg og eygló erum töff píur..

Svo er bara litli mega sæti bróiðir minn að fara að fermast.. dísess.. það eru 2 ár síðan að jeg var í þeim pakka.. jeg vona innilega að hann eigi eftir að gera e-h meiri skandal heldur en  mér tókst að gera í kirkjunni..

 hann spennir greipar og biður til guðs alltaf á heilatímanum.. ( þessi ferming er að fara með hannn)

en jáá.. þá verður þetta ekki mikið lengra í dag.. en ef til vill mun jeg henda inn nokkrum myndum af árshátíðinni og íþróttadeginum.. þetta fer allt eftir því hvort klukkan ákveður að ganga hratt eður ei.. en jeg kveð að sinni..

lifið heil..

 

Kv Þórdís..gellan sem gæfi allt fyrir að fá að fermast aftur..

P.s jeg hef leitað og leitað .. og jeg hef fundið hann.. þetta er sonur frelsarans.. a.k.a Jesús.. hann á heima á golgotu 14....

jesús..

Dísesss..?


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 22:13:50 / thordis_

Aldrei er svo djúpur brunnur að ei verði upp ausinn..ha..?

jæja.. held að þessi síða eigi eftir að byrja að steingerfast ef að jeg fer ekki að blogga meira.. dísesss.. en það er einungis eitt hægt að gera við því.. og það er .. að blogga..

hmm..helgin var nú svona semí.. föstudagurinn fór bara í e-ð tjill.. svo á laugardeginum var unnið einsog biluð manneskja.. í bakaríinu og þjálfað litla stráka sem eru með vit á við sultukrukku.. og getur því oft tekið á taugarnar þegar að maður á að reyna að leiðbeina þessum elskum.... en jæja.. síðan var farið til erlu beibí um kvöldið.. en hún dísa og halla héldu afmælið sitt saman.. og boðruðum við nokkrar píur saman mega góðan mat.. fórum í pottinn og gerðum ímsa aðra siðlega hluti.. ?

síðan fór jeg bara beint til eiginmanns míns.. svo var sunnudagurinn svona meira og minna.. (þá frekar meira) nýttur í svefn.. svo var bara borðað.. og hvað var annað en partýskinka á boðstólnum..  úff þessi skinka

 Fyrir slátrun.

 eftir slátrun.. glans..?

en jæja.. svo var maður bara að labba heim úr skólanum í dag.. það er ekki frásögu færandi nema að það gekk fyrir framan mig lítill drengur.. jeg var á svolítilli hraðferð og nálgaðist hann ört.. þegar að jeg var nánast alveg komin að drengnum.. leit hann til baka með skelfingar svip á andlitinu og hljóp einsog fætur toguðu áfram og til vinstri.. jeg veit ekki hvort að þetta var bara jeg .. eða hvort hnífurinn eða gaddahálsmennið áttu einhvern þátt í þessu.. en þá er allvega greinilegt að ungmenni landsins hafa lesið greinina sem að jeg og elva skrifuðum í mosfelling og þeir hafa líklegast hugsað sinn gang.. sem er ekkert nema gott...

greinin..

ööö.. síðan lennti jeg í því skemmtilega atviki í fótbolta í íþróttum í dag að ætla að skalla boltan.. en í staðin var neglt í hausinn á mér af markmanni hins liðsins.. (jeg gef ekki upp nein nöfn).. siggeir kennari hélt því fram að jeg væri búin að skemma á mér hausinn.. og þetta væri svona semí vægt heilablóðfall.. gat m.a annars ekki svarað spurinigunni hvað eru 2+2..? en jeg meina.. jeg get það hvort sem er ekkert þrátt fyrir að fá ekkert högg á hausinn...

en þar sem að jeg hef ekkert meira að segja í orðum.. ætla jeg bara að láta nokkrar myndir frá spáni skína hérna á skjánnum....(sökum þess að eygló sveik mig.. og ákvað að fara í ferð með eldriborgugum og bjarti til spánar á sama stað og jeg fór í sumar..um páskana.. í stað þess að fara með mér til DK..) ætla bara að láta þig vita eygló.. að þú misstir sirka 11 töfrastig við þessa ákvörðun...!

spánn beibí..jee 239

ahh.. mest kósí í heimi að liggja á bekknum eða í sunlauginni og verða brún (eða í mínu tilfelli rauð)

spánn beibí..jee 112

Sólarvörninn var besti vinur minn..

spánn beibí..jee 012

Við fengum að labba í ár í 32 stiga hita til skoða kastala..þetta var sá 18 sem við höfum fengið að skoða á síðustu 4 árum .. við fáum aldrei nóg.. (takk pabbi)

spánn beibí..jee 048

spánn beibí..jee 058

Það var sko farið í tívolí..

spánn beibí..jee 066

spánn beibí..jee 109

vöflur voru óspart borðaðar eða svona 8 sinnum á þessum eina degi sem við fórum í vatnsrennibrautagarðinn.. þar kenndi jeg arnari að fara í stóru rennibrautirnar einsog alvuru karlmaður.. ( þar sem að hann er 6 ára.. þá þarf hann að læra það..)

eeen nenni ekki meir.. en óska hér með eftir e-h sem langar til útlanda og getur splæst...? gísli marteinn..? rakel.. kemuru til lúx..? ragnhildur.. aftur til kúbu..?séns á að fara í meistaraflokk val.. og fara út með guðnýju..? eygló.. drepa bjart og jeg fæ hans sæti í flugvélinni..? djók.. (en samt séns..?)

jæja.. leiter....8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 18:29:55 / thordis_

Félagarnir eru lífið...

öhh.. ákvað að skella inn einu bloggi þar sem að jeg á að vera að læra undir stærðfræði.. en gafst upp..því jeg og stærðfræði erum ekki einsog jeg og eygló.. nei klárlega ekki.. við erum óvinir.. og þegar að jeg hef öðlast heimsyfirráð.. þá er það fyrsta sem jeg ætla að gera..er að útrýma allri stærðfræði....

úff.. en annars gaf seinasta vika í skólanum smá tilefni til að blogga.. því þá voru einmitt þemadagar.. þemadagar eru allt.. maður gerir ekki neitt og þegar maður er orðin þreyttur á að gera ekki neitt.. þá fer maður bara heim.. eintóm sæla..

 og á lokadeiginum var svo svaka sýning.. og allir helstu listamenn gaggó mos sýndu af hverju guð gaf þeim líf..

hér fyrir miðju erum við einmitt með frænku þýska listamansins úrsulu juleman.. hana elvu (juleman?) og er hún voða einbeitt á svip..

svo lék stórhljómsveitin bjarni og co nokkur indæl lög.. ( þeir eru sjúklega færir)

haraldur ari.. einn heitasti pillturinn í 9unda fékk allar 9undu bekkja stelpunar til að slefa á eftir sér..

 Auk þess voru fullt af misskemmtilegum atriðum.. en það sem gladdi mitt hjarta voða voða mikið var þegar að jeg var þegar að jeg hitti semí subbulegan ungan pillt fyrir utan skólann..

hehe..  hómer gríman er toppurinn..

helgin var svo alveg semí..maður lennti í því að fara að sýna jakó íþróttaföt fyrir e-ð ölvað lið uppí hlégarði á föstudaginn útaf e-h gleði sem afturelding skipulagði.. úff.. það var svona semí vafasamt..

en jeg og hafdís stóðum saman allt til enda.. jeg get nú ekki alveg sagt að jeg hafi verið heppin með fötin sem jeg þurfti að sýna.. svona besta orðið sem að lýsir þeim væri líklegast .. hmm.. viðbjóður.. en þetta var samt taumlaus gleði..

svo var bara farið á kaffihús með eygló og steinunni sem er einmitt að deita útlending.. haa..? en það var bara mega fínt..

það var svo farið að vinna á sunnudeginum og síðan beint að keppa eftir vinnu með 2.flokknum.. það má enmitt segja að allt liðið í heild sinni hafi skitið uppá hvað eigum við að segja. 6 eða ef til vill 7unda hryggjalið.. svo slæmt var þetta..

En jeg hef ekki tíma fyrir meira blogg.. þarf víst að reyna að læra e-ð.. því guð skapaði ekki heimin á einum degi.... og jeg er ekki guð.. svo að jeg væri lengi að skapa heimin/læra stærðfræði..

 séns..?

P.s hvenar kemur sumarið.. og trampólíndagarnir..?

......... 046

Leiter.. 8|


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 15:45:21 / thordis_

Ef allir væru hestar.. myndi hagnaður skóbúða hækka um helming..?

jæja.. jeg held að það sé komin tími á e-h svakalega færslu/blogg/gleði..

maður er bara búin að vera fastur í fangelsi lífsins undanfarið.. en það fangelsi er gleðifangelsi með smá ívafi af lærdómi og erfiði..

En jeg ætla að byrja á því að segja frá einni gleði ferð.. þar sem að jeg og keli.. fórum á vespunni í bónus.. keyptum kíló af nammi og brunuðum svo til ragnhildar.. þar sem að hlutirnir fóru að þróast e-ð öðruvísi en við var búist..

VAFASAMT..

Fleirri myndir voru teknar en þar sem að þær eru ekki við hæfi barna hef jeg ákveðið að þær þær verði ekki setta hér inn..( þar sem að þessí síða er samkomu staður allra barna)

jess.. svo lennti maður í því að fara á blakk end væt ballið seinasta miðvikudag.. það var alveg vottur af gleði þar.. en við stúlkurnar tókum okkur til niðrí í lúxussvítunni heima hjá mér.. og það var bara fínt..

jess.. fleirri myndir munu eflaust birtast inná þessari síðu innan skams .. bíðið bara róleg..

En svo að maður segji nú frá fleirri mynda atburðum.. þá fór maður í keflavíkinna enn einu sinni með nokkrum mosó píum að hitta brynju og bryndísi.. en þar fór allt siðsamlega fram og fengum m.a að hlusta á þessa hræðilegu tónlist (ef list má kalla..) sem fólkið þarna hlustar á.. en jeg er nokkuð viss um það.. að eitt þessara laga sé búið til af geimverum og það heilaþvær fólk..og því  munu geimverur brátt hafa yfirráð yfir keflavík.?.  

sjúklega mikið fjöör í gangi...

jáá.. síðan var bara vaknað í djúpum faðmlögum með henni brynju sálufélaga mínum.. og brynja mín dísess það er varla hægt að sofa með þér.. þú varst aðeins og æst þarna um nóttina.. úff.. en eftir smá kúr í viðbót var farið á landsliðæfingu.. svaka fjöör.. og svo var bara tekið rútu heim.. og bara tekið því rólega það sem eftir var dagsins og fór ég m.a í bíó með ástmanni mínum..

síðan var farið aftur á æfingu daginn eftir.. og á leiðinni heim úr rútunni kom jeg auga á auglýsingu sem á stóð.. "þarft þú á loftstokkahreinsun að halda?" öö.. hvaða maður vill sjá um að starfa við það.. öö jáá.. jeg heiti Þórður.. jeg er hámenntaður loftstokkahreinsir.. tók þetta á 2 árum í Fb.. tók svo nokkra kúrsa í loftstokkahreinsun í háskólanum.. og dúxaði á lokaprófinu og er nú með meistaragráðu í loftstokkahreinsun..? er það e-ð framtíðin..?

jæja.. maður spyr.. hmm.. jeg hef nú samt sem áður ekki frá mikið fleirru að segja.. var samt að pæla í því hvort að eygló sif sé nokkuð búin að yfirgefa þennan heim.. því að jeg er ekkert búin að heyra í henni í meira en 2 daga.. og það er e-ð sem hefur líklegast aldrei gerst áður..?! eygló.. kom bakkk.. kkkkkkk ??

en endum þetta bara á smá gleði milli bæjarfélaga..

´

Mosó LÖÖV Keflavík..?

LIfið heil.. leiter.. 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 15:18:59 / thordis_

Jeg elska gömlu góðu tímana... Lifi rauðhærðir..!

Þá er loksins komið að því.. eftir langan tíma hef jeg ákveðið að blogga aftur.. en geri þetta einöngu fyrir ykkur þarna úti.. eygló og.. öö..?

En allavegana margt búið að gerast.. þar seinustu helgi eyddi maður stundum sínum með brynju bjarnadóttur keflavíkurgellunni.. en hún er einmitt fyrir þá sem ekki vita búin að taka upp trúlofunarhringin (armbandið) á ný og er trúlofuð honum kobba.. gleði..? en við áttum nokkrar gleðistundir saman.. fóru m.a í keilu með gellnum þar sem að jeg gjörsamlega valtaði yfir þær með a.m.k 5 fellum í röð í byrjun.. svo tókum við því bara rólega keyptum nammi fyrir hvað.. 2000 krónur..? og spjölluðum saman um lífið.. 

  ójee.. 010

jeg Og brynja erum töff...

Síðan var maður bara veikur alla síðustu viku.. plús laugardaginn.. en fór svo á æfingu í keflavík á sunnudeginum.. og varð þar eftir hjá brynju og bryndísi.. það líður varla einn dagur í lífi mínu án þess að jeg hitti þessar gellur.. svo er maður bara búin að vera í prófum og æfingum.. alveg tremma gleði..

En jeg vil tileinka henni Ragnhildi Bjarnadóttur elskulegu ástinni minni þetta blogg.. hún meiddist á æfingu í gær.. hnéskelin fór úr lið.. og endaði þetta allt með að sjúkrabíll kom og sótti hana (einsog gerist nánast alltaf þegar að hún meiðir sig..) en jeg vil óska henni góðs bata..

 dísess.. ætla að biðja töfraguðinn um að lækna hana

 töfraguðinn er vinur minn...

Ragnhildur og jeg á góðri stund í lífinu...LööV

En jáá.. nú erum við 3 eftir á eldra ári.. og 2 eða 3 á yngra ári sem að getum leikið æfingaleik sem á að jeg held að vera á þriðjudaginn.. það er svo mikil gleði að æfa með svona liði.. alveg himneskt

  Danmrk013-vi

Jeg vil fá gömlu gleði tímana aftur..með gamla 3.flokknum.. þegar að við tókum lillan fyrir hvern leik í danmörku.. nema malín .. hún var/er oof töff..

DSC02367

Og þegar að stúlkurnar lenntu í grimmilegri árás af hollendingum.. ( hver man ekki eftir viðbrögðunum hennar bryndísar..)

æðislegt... vá 054

og þegar Jeg var rauðhærð..brynja ennþá saklaus..Eygló sif ennþá ofdekraðari en í dag.. (sumir spyrja ef til vill: er það mögulegt?) og Íris var.. öö..draugur..?

æðislegt... vá 060

æðislegt... vá 038

æðislegt... vá 039

elsa var meira að segja ekki orðin of töff fyrir fótboltan..og ef vel er gáð þá má sjá hana mjög saklausa skokkandi með fjólublátt hárband eflaust að hugsa um píþagorasarregluna...?

En þetta verður ekki mikið lengra í dag.. vildi bara minna fólk á gömlu góðu dagana..og einsog maðurinn sagði.. Betri er bið en bráræði.. og þessvegna ætlum við að bíða róleg eftir sumrinu sem mun koma með betri tíð og ljúfa daga..

Lifið heil.. 8|

p.s.. jeg er farin að skilja stærðfræði..

stærðfr


» 21 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 15:00:48 / thordis_

Fólk er skemmtilegt.. jeg er fólk..?

jeee beibí... er ekki búin að vera í bloggbúningnum mínum seinustu daga.. en er svo sannarlega komin í hann núna..

Grímubúningar Lúsífer

Jáá.. helginn mín var svona melló.. átti nokkrar gleði stundir ásamt öðrum sem fylltu hjartað mitt ekki af eins mikillri gleði.. en svoleiðis er það nú bara..byrjaði á þvílíkri gleðistund á föstudeginum.. þar sem farið var í keilu með gellunum...

Ragnhildur mjög ákveðin á svip... (hún æfir keilu 8 sinnum í viku.. það útskýrir velgengni hennar á okkar mánaðarlegu keilumótum.. en hún er ávallt í toppbaráttunni)

Efti keilu var farið heim til öglu í afmælishlaðborð.. íslenskar flatbökur með alskyns framandi áleggjum.. síðan var farið að vinna á laugardeginum.. sem var súrt.. fór svo til eyglóar um kveldið og við áttum ljúfar stundir.. vaknaði síðan á sunnudeginum eldhress. og tók rútu til keflavíkur og keppti þar leik með landsliðinu.. og varð síðan eftir í keflavíknni hjá brynju og bryndísi.. bara gleeði..

Seiðandi.. 041ójee.. 008

bakk in ðe deis.. þegar að píurnar voru mosfellingar í húð og hár..!

Jeg byrjaði á því að kenna þeim gamla hefð mosfellinga.. og fór með þær á söbvei.. söbveinn þarna var samt sem áður e-h einkennilegur..söbvei fólkið ræktar grænmetið sjálf þarna á bakvið og eru með stökkbreytt beikon ásamt sérframleiddri keflvískri ostasósu..

 þetta var einhver svona pakki..

En síðan var að sjálfsögðu farið og keypt smá nammi.. og svo haldið beint til hennar rebekku.. en hún er sko ljúf stelpa.. held að við höfum verið systur í fyrra lífi.. við bonduðum svo vel.. þrátt fyrir að vera að hittast í fyrsta skipti..

En þar var horft á leikinn Manjú vs liverpúl... og einsog þeir sem að lifa ekki í pappakassa vita þá vann manjú...gleði gleði..váá. hvað jeg löva ríó ferdinand..

 ríó er töff..

En jáá.. svo var bara rætt um allar nýju myndirnar sem voru að koma í bíó þarna í keflavíkinni.. Toy story 2.. forest gump og fight club.. allar þessar heitu... síðan var bara farið heim.. og tók skólinn við..............

Lífið er skólinn

en ekki jólinn..

jeg kemst ekki í kjólinn..

í kvöld fara börnin í bólinn..

Jess.. var í íslenskuprófi.. sem innihélt m.a Ljóð : braghætti ,tvíliði.. þríliði.. hákveður og lákveður..var búin að læra e-ð.. en þegar að jeg kom svo í prófið.. þá var bara búið að semja e-ð fullt af nýjum orðum (bragháttur. spliff, donk, gengja?)sem að jeg skildi eeeeekkkert.. og jeg lennti gjörsamlega í feninu...!

En í gær tókum við gellurnar í 3.flokknum æfingarleik við Þróttarpíur.. og unnum þær 4-0.. hefðum getað unnið þær með fleirri mörkum en ákváðum að vera góðar við þær..

En jeg hef ekkert meira að segja.. svo að jeg er farin að gera e-ð að viti .

 

lifið heil.. leiter....8)

p.s bjúga eða bjúgu..?

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 16:33:14 / thordis_

Óhappadagurinn föstudagurinn 13..?

jæja.. krakkar mínir.. föstudagurinn 13. í dag..

jeg ætla rétt að vona að það komi ekki ísöld.. að risaeðlur taki ekki yfir heimin og jeti okkur öll.. að steingrímur njálson fari ekki og láti klóna sig 500 sinnum...að kvennkynið deyji ekki út..? tjaa maður veit aldrei hvaða óhappahlutir geta átt sér stað á svona óhappadögum..

 Vesen að lenda í þessu..?

En jæja.. í dag var haldið þeirri árlegu hefð að sprengja klósettið í skólanum.. hvílík gleði... og skemdarvargarnir ógurlegu.. hver ætli þetta hafi verið..kvk/kk/hk ljóshærð/ur dökkhærð/ur rauðhærð/ur??... tjaa.. jeg gef ekkert upp hér á veraldarvefnum.. en málið er í rannsókn..

svo var maður bara djollí í íslenskutíma.. svo var allt í neinu öskrað ÞÓRDÍS..! ee jáá guðlaug mín..?Gulla: Er ekki ekki atviksorð..? og auðvitað svaraði jeg spurningunni vitlaust.. og fékk vænan kinnhest fyrir það.. (díí.. konana hatar mig.)

En annars er það bara íslandsmótið með 2 og 3.flokk um helgina.. ætla að vona að læknaandarnir verði með mér. og meiðslin sem eru búin að vera að hrjá mig verði horfin.. annars verður ásta bara barinn..? eða við förum bara saman á barinn.. haa..?

Krissi er síðan bara alveg í feninu.. hann er búin að grenja í mér núna í nokkra mánuði um að jeg láti inn mynd af honum og "byssunum" hans hér inná þessa forlátu síðu..og loks hef jeg ákveðið að verða að vilja hans....

krissi massi Heitur gæi..?

Hann krissi hefur mikið dálæti af örbylgjupoppi, uppáhalds myndin hans er Mean girls.. hanns uppáhalds litur er grænn og hann elskar pasta og mjólk.. en samkvæmt mínum heimildum er hann trúlofaður svo að gellur plís látið hann vera...

en þetta óhappablogg? verður ekki mikið lengra.. vil bara óska ykkur gleðilegarar helgar og  lukku í lífinu.. gangið hægt um gleðinnar dyr..

leiter.....8) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 19:02:22 / thordis_

Smá yfirfærsla af hinu yndislega ári 2005...

jesss.. nú er árið 2005 búið að ganga sitt skeið.. með gleði sorg og öllu sem tilheyrir ári..?

Margt gerðist nú á þessu herrans ári.. mis áhugavert samt sem áður.. en jeg ætla svona til gamans að fara yfir nokkra hluti...

 í Fyrsta lagi.. gerðist jeg söbbvei fíkill.. og hef afhent að minstakaosti 6/8 af laununum mínum í hendur afgreiðslumanna söbveis..

Dvergholtsfjölskyldan splæsti í trampólín.. og var eytt flestum frítíma sumarsins úti á þessu tryllitæki...

......... 007

Þvílík gleði barst út um allan mosfellsbæ þegar að jeg og guðný tókum nettan göngutúr með 3 andarunga á eftir okkur í sumar (reyndar nokkrir sem að hringdu í geðlækni og héldu að við værum e-ð brjálaðr.. en við erum að sjálfsögðu stálheilbrigðar)

Brynjan og Bryndís skildu okkur mosópíurnar eftir í sárum þegar að þær fluttu til keflavíkur.. (með þessu uppátæki misstu þær 6 töfrastig og eiga ekki nema 4 eftir) þær eru samt alveg fínar píur..

spánn beibí..jee 239

í Júlí hélt jeg ásamt fríðu föruneyti.. (familíunni) til spánar.. þar sem gleðin var yfirgnæfandi mest allan tímann.. vatnsrennibrautargarðar.. tívolí..ströndin.. Risastórt moll við hliðná hótelinu..:) lífið gerist varla betra.. nett tjill..

æðislegt... vá 003

Undir stjórn Gunnars borgþórssonar.. komumst við gellurnar í 3.flokki í undanúrstlit í íslandsmótinu í sumar.. en það er e-ð sem hefur aldrei gerst í sögu aftureldingar en verður hér eftir árlegur viðburður...

ójee.. 005 Systir mín varð áttræð.. og er byrjuð að ganga í skautbuningi alla virka daga...?

fótbolti Lífið varð fótbolti...?

vó... 035 bústaðarferðin ógurlega.. þar sem dramað ríkti yfir öllu....... gúd tæms..

 sjúters...? haaa..?

Margt vafasamt átti sér stað.... m.a mörg myndavélaflipp hjá mér og eygló.....

eþk

kosstrampólín.. 071

Sem enduðu síðan öll eins.. feitur sleikur...?8|

 ástin rauk síðan upp úr öllu valdi í lok ársins og er maður nú harðgiftur..?

jæja.. það var svosem margt margt fleirra sem að átti sér stað á árinu.. en jeg nenni nú ekki að telja upp fleirri óáhugaverða hluti.. jeg vil bara þakka þeim lánsömu manneskjum sem hafa fengið þann heiður að eyða tíma með mér á árinu fyrir samfylgdina...

Þetta ár á eftir að verða e-ð skrautlegt.. Æfingar og lærdómur mun líklegast vera það vinsælasta fram að samrændu.. vonandi danmörkuferð um páskana.. út með fótboltanum í sumar..? menntaskóli..(bara gleði..meiri skóli jeee)...............

En þá verður þetta ársblogg ekki lengra.. takk fyrir mig...

fallegt2 Þórdís..

Leiter...8)


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 22:41:48 / thordis_

veiiii

óójee.. við erum að tala um það að þetta blessaða ár er að líða undir lok... á morgun eru landsmenn allir/flestir að fara að fagna nýju ári með veislumat og ragettum.. sumir ef til vill með smá áfengi.. els(K)a..?

Jeg var bara svona aðeins að pæla í því að það er að koma árið 2006.. hvað er í gangi.. það er bara stuttt síðan maður var lítil rauðhærð (nokkuð vel yfir kjörþyngd) saklaus stúlka... núna eru breyttir tímar.. maður er bara vinnandi einsog 4 barna móðir og gerir ekkert nema sofa.. þar á milli... en það á svo sannalega eftir að breytast.. því að árið 2006 mun vera ár gleðinnar .. það er sko enginn vafi á því...

Gleði...?

En jeg nenni ekki að skrifa langan pistil.. er að fara að sofa..??

vil bara óska ykkur lesendum góðum gleðilegs nýss árs..

og hafið það gott það sem eftir er af árinu...því  lífið er einsog baunadós.. kringlótt.. og það hefur læti ef maðaur missir það...??

.. Leiter... 8|  LÖÖÖV8)


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 18:34:21 / thordis_

Gleði gleði gleði.....

Jess.. jeg ætla að byrja þetta forláta blogg á að óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla.. og ef till vill smá farsældar á komandi ári..

en einsog allir vita eru jólin tími gleðinar.. ánægjunnar og væntumþykjunar..(löööv).. í myrkri skammtímans er haldin heilög hátíð með pökkum..og indælum mati..oft á tíðum.. gleymist friðurinn sem á að vera um þessi hátíðarhöld.. og fólk missir sig i stressi og áttar sig ekki alveg á jólunum.. jeg lennti í smá veseni..var ekki í neinu jólaskapi.. en sem betur fer kom jólaandinn til mín á þorláksmessunótt...

jólaandinn

við áttum gott samtal.. jeg spurði hann meðal annars útí það hvað jólin snérust um .. og hann sagði mér allt um það.. síðan henti hann töfradufti í andlitið á mér..og jeg fann jólin beint niðrí hjarta..

ahaa.. en annars voru jólin bara tremma fín.. gleðin sem ríkti hérna í dvergholtinu var líklegast svona 24,5 km og jeg er ekki frá því að hún hefði verið um 1-2 tonn ef hún væri mæld í kílóum..

Alexander og arnar foolar á aðfangadaginn..

kósí stemmari...

valli og jeg.. sjúklega hressar og fínar..

addi sæti að opna pakka..

Og alexander foooli..

taumlaus gleði...

hehe.. uppáhaldsmyndin mín.. jeg sjúklega töff.. mamma ?? og valdís haa..?

svo er eigilega keppni um það hvor sé meira æsandi.. lýðurinn verður bara að dæma..

Annars held jeg að þetta sé frekar tæpt...

Svo kom hún eygló sif til mín á jóladag.. og við áttum indæla stund saman.. þangað til að jeg sofnaði.. og hún tók e-h vafasamar myndir af mér í svefni..

eygló og dísa.. 016

gríðaleg fegurð á einni mynd...

eygló og dísa.. 024

Störukeppni...?

Síðan var það bara myndasyrpa af mér...

eygló og dísa.. 036eygló og dísa.. 041

eygló og dísa.. 044eygló og dísa.. 045

eygló og dísa.. 049eygló og dísa.. 061

Jeg er svona nett að spá í að skella mér í módelbransan.. en það verður bara að bíða þangað til eftir samrænduprófin....

En annnars hef jeg ekkert meira að segja.. nema bara.. vinsamlegast hakkið í ykur eins mikið af selebreisjon og makkíntossi og einsog þið mögulega getið svo þið getið nú tekið vel á því eftir jól.. annars er ekkert gaman.. í lífinu..?

Lifið heil 8)

P.s.. það eru að koma áramót.. sem þýðir að það er að koma nýtt ár.. en það þýðir að þetta ár sé að verða búið.. og að jeg fer að verða 16 ára. svo að jeg þarf ekki lengur að nota kennitöluna hennar eyglóar þegar að jeg fer í bíó á bannaðar myndir.. vúhúúú...:D

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 00:00:00 / thordis_

Það sem kemur úr dós.. færir þér ljós...

Díses... jeg veit eeeekkert hvað jeg er að gera í lífnu... er ekki alveg að meikaða að það sé 18.desember.. á eftir að kaupa 15 eða fleirri jólagjafir... og jeg hata að versla jólagjafir.. held að jeg sé búin að smitast af guðnýju...!

Það er ekki hægt að finna neitt til að gefa fólki sem að á allt.. og er ofdekrað.. (þetta er ekkert endilega beint til þín eygló)

jeg er að pæla í að gefa henni bara bók... þar sem að hún hefur einkar mikinn áhuga á skyndibitum.... er ekki séns á að sálin fái smá skyndibita..?

Nenni ekki í jól...... langar bara að vera ýkt fátæk... og gefa fólki.. tálgaða spítukalla í jólagjöf... þá færi hamingjan upp úr öllu valdi.... (allir fátækir eru ánægðir með spýtukalla)

Er jeg grins..?

En annars er maður búin að gera fátt annað en lítið þessa helgina.. það var horft á ædolið með ara og kela á föstudagin .. og svo farið til guðnýjar og eyglóar.. og látið fúsa skutla sér til hans davíðs... ( jeg löva fúsa..) svo var bara tiltekt á laugardeginum.. váá hvað jeg hefði getað búið til nýtt gerfigras bara úti í garði með öllu þessu ansk gúmmií sem að maður finnur allstaðar í þessu litla herbergi sem að jeg á...

en núna er allt orðið voða fínt og ekki er hægt að finna rykkorn á hillum....:!:

Svo í dag var farið að selja spila spilastokka til styrktar hinu eina og sanna liði Aftureldingu.. við fórum á heimavöll minn.. bakaríið.. jeg króaði alla fastagesti af úti í horni.. horfði djúpt í augun á þeim.. (rakel flassaði fyrir aftan).. og náði svo að dáleiða þá svo að þeir keyptu spil...  það gekk bara ágætlega.. seldum 17 stokka eða e-ð svoleiðis..

Umfa spilastokkar eru klárlega málið í dag...!

 

Svo fórum jeg.. rakel og ragnhildur í kringluna eftir sölumenskuna.. og svo fóru þær stöllur að kaupa jólagjöfina fyrir mig.. á meðan sat jeg ein á stjörnutorgi.. ýkt fjöör....

Svo var farið heim og tjillað.. fór að sofa.. og átti svo einkar skemmtilegt samtal við eygló sif í síma.. (veit núna allt um vaxtarlag frænku hennar).... en svo átti maður bara smá familí tæm með litla bróður.. fórum í keppni í e-h ömurlegum leik.. sem að jeg vann..... ( jeg er best í öllu.........! líka böbböl tröbböl)

En jeg hef ekkert meira að tjá mig um einsog er.. vil bara þakka lesturinn.. ef e-h sá sér fært um að lesa þetta í þessu blessaða jólaamstri...

Veriði sæl og lifið heil.............8|

 

lífsgæðakapphlaup...?


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6